haustið mætt til Tilburgar
Hér á bæ hefur haustið verið rólegt og fínt, og við svosem ekki verið mikið á ferðinni. Gunni hefur verið hér hjá mér í Tilburg frá byrjun október, og það hefur farið vel um okkur hér í litlu 50fm íbúðinni minni. Veðrið hefur verið alveg frábært hingað til, nánast alltaf stilla og hitinn var svona í kringum 20° í september og 13-17° í október. Ekki hafa heldur skemmt fyrir fjölskrúðugu haustlitirnir á öllum trjánum hér í kring, sem er nú nokkur slatti af. Það er mjög flottur og stór garður beint fyrir aftan háskólann sem ég kíkji í stundum í hádegishlénu til að hressa upp á sál og líkama eftir stífa tölvuvinnu daginn út og inn, og hefur verið afar flott að fylgjast með litabreytingunum þar. Sömuleiðis höfum við Gunni rölt talsvert niður í miðbæ sem er ágætis 30 mínútna ganga, til að kíkja í búðir, fá okkur snæðing og hollenskt eðalöl inn á milli.
Við fórum þarseinustu helgi góða dagsferð til Delft, Den Haag og Schrevinengen, með litlum hópi fólks úr háskólanum og skoðuðum okkur um. Það er alltaf jafn gaman að koma til Delft, enda afar sjarmerandi borg. Við höfðum ekki farið áður til Den Haag og Schrevinengen, og mín var ánægð með að anda að sér ferska sjávarloftinu... :o) á kaffihúsi við sjávarsíðuna fékk ég eina þá bestu eplaböku sem ég hef á ævinni fengið, og ekki skemmdi fyrir að sitja við arineld eftir langan göngutúr í svölu sjávarloftinu. Nú, seinasta föstudag kíktum við svo til Utrecht á tónleika hjá Conservatorium tónlistarskólanum, þar sem Gunni hitti einn íslenskan söngkennara sem hann ætlar kannski að kíkja á. Á tónleikunum hófu fjórir íslenskir söngnemendur upp raust sína, ásamt hollenskum kollegum sínum og fjölda tónlistarnema (fiðlur, celló, píanó, þverflautur, víólur etc.). Það var mjög gaman að kíkja þarna og Utrecht virkaði mjög vel á mig, við eigum eflaust eftir að kíkja þangað aftur við tækifæri. Það er verst hvað það er dýrt í lestarnar hér, við erum að borga alveg 25 evrur á mann fyrir ferð fram og til baka til Haag, sem svíður aðeins í budduna, sérstaklega þegar krónan er komin lengst niður á hafsbotn...,
En já, lífið gengur sinn vanagang hér, það er ósköð notalegt að hjóla í vinnunna á hverjum degi, kíkja við í búðinni á leiðinni heim og elda svo fyrir eiginmanninn sem er duglegur við sínar söngæfingar hér daginn út og inn. Ég tók mig til og fór með marenstertu upp í vinnu um daginn, þeir eru ekki mjög vanir marenstertum hér hollendingarnir og þótti tertan góð. Svo fór ég reyndar líka á matreiðslunámskeið um daginn með allri deildinni úr háskólanum þar sem ég lærði nýja uppskrift af súkkulaðiköku með vanillukremi sem var hreint ljómandi góð. þ.a., þeir sem kíkja hingað í kaffi meiga eiga von á einni góðri...jæja, ég læt þetta nægja í bili, þarf að koma mér í háttinn, vinnan bíður á fyrramálið!!
kveðjur,
Erlíus,
ps. nýjar myndir á myndasíðunni
laugardagspistill
Ætli það sé ekki komin tími á nýja bloggfærslu, á rólegum laugardegi.
Við höfum það gott hérna úti þessa dagana, og lífið gengur sinn vanagang. Gunni hefur verið á fullu við söngæfingarnar, og ýmist situr/stendur við píanóið og gaular, horfir á óperur í sjónvarpinu með nóturnar fyrir framan sig og lærir texta, eða hlustar á söngkennslu vídeó og æfingar á youtube. Það er ótrúlegt hvað þessir söngstrákar geta nýtt sér youtube mikið til að hlusta á ólíkan flutning á lögum, söngkennslutíma, umræður um söng og masterclassa hjá ekki verri köllum en Pavarotti og Domingo.
Nú, á öðru sviði en tengt tónlistinni, þá upplifði ég um daginn áralangan draum minn og sá uppáhalds hljómsveitina mína á sviði, PEARL JAM! Ég var mjög spennt fyrir tónleikana en vissi samt ekki alveg við hverju ég ætti að búast. Við mættum klukkutíma fyrir, áður en hleypt var inn á tónleikasvæðið, og vorum á alveg fínum tíma, því það voru bara svona um 400 manns mættir á undan okkur. Það tók aðeins á þolinmæðina að standa í 1 ½ tíma í röð fyrir utan svæðið í mannþrönginni í 25°hita og sól. Þessi bið borgaði sig þó því við fengum mjög góð sæti, neðarlega í miðjunni, beint fyrir framan sviðið þar sem maður sá vel yfir allan vettvanginn. Það var góð upphitunarhljómsveit sem heitir Gomez, og ég tók mér góðan klukkutíma til að bíða í biðröð til að kaupa stuttermabol merktum sérstaklega þessum tónleikum, ( I know, algjör lúser en ég bara varð...). Stemningin var svakalega góð í áhorfendahópnum, og eftir því sem það styttist í að Pearl Jam stigu á svið, fór meiri tilhlökkun um hópinn, það var alveg rafmögnuð eftirvænting í andrúmsloftinu, allur 20.000 manna skarinn fór að senda waves um allan leikvanginn og klappa á fullu. Nú, ég ætlaði varla að trúa því að ég væri þarna í raun, þegar þeir stigu fyrst á svið og ég sá Eddie Vedder, draumaprinsinn minn til margra ára setja sig í stellingar fyrir fyrsta lagið. Nú, restin var bara algjör draumur. Allur skarinn söng með frá fyrstu nótu til þeirrar seinustu, þeir voru með alveg ótrúlegan lagalista þetta kvöld og ég fékk að heyra fullt fullt af mínum uppáhaldslögum og heillaðist af nýjum lögum. Það sem meira var, var að stemningin í tónleikagestum var svo góð, veðrið var alveg fullkomið, sólin rétt að setjast þegar þeir byrja að spila, tónleikastaðurinn var umvafinn trjám og fullur af fólki sem var virkilega glatt og hamingjusamt yfir því að vera þarna, hljómsveitarmeðlimirnir virtust virkilega njóta þess að vera þarna og spila fyrir okkur, og vildu eiginlega ekki hætta.
Mín var með tár í augunum þegar Better Man byrjaði og allur skarinn söng með án þess að Eddie þyrfti að syngja eitt orð
Algjör draumur út í eitt.
Ég var alveg eftir mig eftir þessa tónleika og held að ég hafi verið rosalega heppin að komast á akkurat þessa tónleika, því eftir tónleikana lýstu margir gamalreyndir aðdáendur hljómsveitarinnar því yfir á vefsíðu hljómsveitarinnar að þetta hefðu verið bestu Pearl Jam tónleikar sem þeir hefðu séð, og þeir höfðu margir hverjir sótt ansi marga tónleika
Mín gæti ekki verið ánægðari!!
En yfir í aðra sálma, fyrir utan þessa tónleika höfum við Gunni ekki brallað mikið upp á síðkastið. Við höfum kíkt annað slagið til Egils, Soffíu og Júlíu, litlu skvísunnar þeirra, ýmist í mat, spjall, eða hitt þau í einhverjum af þeim fallegu görðum sem er að finna hér í borg. Það er alltaf jafn gaman að kíkja á þau í heimsókn. Við höfum líka kíkt í bíó annað slagið með Davíð, og þá helst í surprise bíó, þar sem maður fær miðana ódýrari og sér einhverja mynd sem ekki er komin í bíó ennþá, en maður veit þó aldrei hvaða mynd verður sýnd. Það er samt alltaf gaman að kíkja, þarna hef ég séð myndir sem ég hefði annars ekki farið á í bíó... og við höfum þó verið nokkuð heppinn, bara í eitt skipti sem við lentum á hundleiðinlegri mynd! Annars er veðrið búið að vera mjög gott hérna úti, sól og blíða upp á eiginlega hvern einasta dag, sem hefur leitt til þess að ég hef leyft mér að hoppa út í pásum í sólbað í garði hér nálægt, og lært í staðin lengur fram eftir kvöldi.
Í kvöld ætlum við svo að kíkja á live óperusýningu niður í miðbæ. Í dag er dagur safnanna, og öll söfn hér í Berlín (eða mörg hver allaveganna), eru opin fram til kl. 02 í nótt, og Staats óper ætlar að vera með opna óperusýningu, þar sem sett verða upp risaskjáir á torginu fyrir framan óperuhúsið þ.a. gestir og gangandi geti hlustað á. Það verður vonandi voða gaman.
Læt þetta nægja í bili, kannski ég hendi inn myndum við tækifæri, en við höfum ekkert verið neitt voðalega dugleg í myndartökum nýlega...
Kveðjur,
ótrúlegt en satt
En hér kemur stutt version af fyrri textanum:
Foreldrar Gunna eru nýfarin heim eftir góða vikudvöl hér í Berlín. Þau náðu að sjá ágætis slatta af borginni þó hnéð á Má hafi truflað hann nokkuð, við notuðum strætóana óspart í staðinn. Við náðum að kíkja með þau á klassískku staðina; Kurfurstendamm þar sem kíkt var í búðir, niður á Gendermenmarkt að skoða þýsku og frönsku kirkjuna, Alexanderplatz, Friedrichstrasse, Potsdamer platz, auk þess sem við fórum með þau um hér í kring um hverfið okkar og fórum einn dag í Botanishcer Garten, sem er risastór 126 fm listi-og plöntugarður.. sem hefur að geyma um 22. þús plöntutegundir og eitt stærsta gróðurhús í heimi. Þarna eru plöntur alls staðar að úr heiminum og afar áhugavert að skoða. Nú, Ásthildur og Cristophe náðu að kíkja aðeins til okkar yfir helgina og var það mjög gaman. Það var spjallað mikið og tekinn heljarinnar Berlínartúr á laugardeginum, en sunnudagurinn var nýttur í brunch með allan hópinn og svo bara að slaka á í góða veðrinu. Alltaf gaman að fá gesti til Berlín :o)
Fyrri part sumarsins nýttum við Gunni svo hér í Berlín til tölvuvinnu og söng, en höfum verið dugleg inn á milli að fara í hjólatúra, kíkja í garðinn með bók og hitta Einar, Egill, Soffíu og Davíð hér og þar um borgina, bæði í matarboðum heima við sem og að kíkja í nýja garða, út að borða Sushi eða bara spássera um. Við reyndar fórum ágætis vikuferð um allt þýskaland í lok júlí með Agli og Soffíu, og bróður Egils og kærstu hans, þar sem kíkt var til Dresden, Bayruth (tónleikahús Wagners skoðað), Wurzburgar (kíktum á vínekrurnar í ochenfurth og fórum í bátsferð auk þess að kíkja á sjálfa borgina). Eftir 4 daga ferð skildu leiðir og við Gunni héldum af stað í tívolí í Europapark þar sem við bættum við tveimur nýjum myndum í rússíbanamyndasafnið okkar og einni dvd mynd af okkur í íslenska BlueFire rússíbananum. Við vorum hinsvegar hundspæld að það væri ekki íslenskt nammi að fá í íslenska þorpinu!! Eftir góða 2 daga á þeytingi, keyrðum við sem leið lág um svartaskóg til Bodensee, þar sem við kíktum á einum degi til Lindau í þýskalandi (fyrri part dags), bregenz í austurríki (seinni part dags) og Rorschach í Sviss í kvöldmat (ekki svo góð hugmynd því við vorum búin að steingleyma að þeir væru enn með svissneska franka en ekki evrur...). Við fórum líka upp að ölpunum og í fjallakljáf í Obensdorf upp í 2.300 metra hæð, sem var alveg frábært. Þar uppi á toppi var að finna lítinn veitingastað sem hægt var að tjilla á, auk þess sem það voru gönguleiðir um allt fjallið. Við kláruðum svo ferðinna á því að kíkja í sólbað við vatn eitt milli fjallanna og njóta veðurblíðunnar. Ágætis ferðapakki sem við náðum á einni viku, enda voru keyrðir 2.400 km í þessu stutta ferðalagi.
En hversdagsleikinn tekur nú við eftir gestaganginn og ferðalög sumarsins, en þó eru eftir Pearl Jam tónleikar sem fara fram nú á laugardaginn hér í Berlín, og undirritaðri er farið að hlakka mikið til.
Ég mun henda inn myndum af sumrinu við tækifæri, er ánægð með í bili að hafa náð að skrifa inn eitt stykki pistill!! :o) (það er líka hægt að sjá myndir inn á facebookinu fyrir þa sem ekki nenna að bíða).
kveðjur frá Berlín,
Erla
Gunni mættur á svæðið og rúntað um á glæsikerrunni sem er ofsalega ,,Smart
jæja, það eru komnar inn myndir af ævintýrum helgarinnar, sem fólust aðallega í bílrúnt á alveg svakalega smart bíl til Brugge í Belgíu, þar sem skoðaðar voru snyrtilegar og sjarmerandi götur borgarinnar, gætt sér á eðal Belgísku súkkulaði, keypt óperudagbók fyrir Gunna (þar sem hann ætlar að halda dagbók um allar þær óperuuppfærslur sem hann sækir) og vatnlitir fyrir mig (sem ætla að reyna eitthvað að mála hérna úti...sjáum nú til hvernig það gengur), og keyptur ís, kaffi og skyndibitamatur á einu glæsilegasta torgi Vestur evrópu :) Nú, á sunnudaginn fórum við svo í göngu um Loon om Zand þjóðgarðinn sem er í 20 mín. keyrslu beint í Norður frá Tilburg. Garðurinn einkennist af risa stórri sandauðn sem liggur mitt á milli skógi vaxinna svæða í allar áttir. Við röltum þarna um í góðan klukkutíma í nokkuð góðu en vindasömu veðri, en himinninn var ótrúlega flottur með alla hugsanlega blátónaliti í gangi, og svo eftir gönguna förum við á kaffihús þar rétt hjá og fengum okkur ,,tosti" sem er nú bara venjulega samlokuristin :) og ískalt Lipton Icetea. það var meira að segja nógu heitt til að sitja úti... en þó í jökkunum og við hefðum þurft að fara inn um leið og sólin hvarf niður fyrir sjóndeildarhringinn. Um kvöldið kíktum við svo í bíó... mín fyrsta bíóferð hér í borg, og myndin var svosem lala.... Marley and me var ekkert alveg að slá í gegn hjá okkur en poppið og kókið var fínt :9
Vinna í dag hjá mér, Gunni hoppaði til Amsterdam í söngtíma, og ég ætla að drífa mig heim og elda indverskan kjúlla með bóndanum.
bið kærlega að heilsa heim, og þið getið kíkt á nýju myndirnar.
Erla
til hamingju með daginn elsku mamma!!
Jæja, þá er komin tími á smá fréttir héðan úr rigningunni í Hollandi. Fyrst af öllu langar mig að óska mömmu innilega til hamingju með daginn, en frúin sú á afmæli í dag :) Mikið væri ég til í að kíkja heim í kaffi og kökur...en ætli ég komi ekki bara með kökusendingu fyrir hana héðan þegar ég kem heim í maí :)
Nú, lífið gengur sinn vanagang hér úti. Um helgina kíkti ég niður í bæ á laugardaginn í þessu yndislega veðri, kíkti í búðir, fékk mér kaldan kaffihristing úr australia ísbúðinni og hjólaði um miðbæinn. Miðbærinn hér er frekar nettur en ósköp notalegur, með nokkrum þröngum götum með sætum trendy búðum, og svo stærri verslunargötu þar sem hægt er að nálgast þetta klassíska, sem og hinar týpísku hollensku búðir, eins og HEMA keðjuna. Á sunnudaginn brá ég mér í hjólatúr meðfram einum skipakanalnum norður af borginni í ágætis roki.... og var hæstánægð með vindgoluna í andlitinu sem minnti mig hressilega á heimahagana :)
Virku dögunum er svo eitt hér upp í skóla frá morgni til kvölds, enda nóg að gera að klára sem mest af vinnu áður en Gunni mætir á svæðið á föstudaginn. Kallinn sá mun leigja pínuponsu ,,SMART" bíl sem hann ætlar að bruna á hingað frá Berlín, og vera hjá mér hérna góða viku áður en við brunum svo heim til Berlínar fyrir páskana. Á leiðinni þangað ætlum við að taka bíltúr um Rínardalinn og gista e.t.v. eina nótt á leiðinni svona að ganni. Það er enn óráðið hvað við gerum hér í Hollandi meðan hann er hér.., en ætli við kíkjum ekki einn dag í bíltúr um stóru stífluna sem lokar sjóinn af við ströndina, og svo kannski til Belgíu... ég hef heyrt að súkkulaðikökurnar þar séu algjört lostgæti og hlakkar til að smakka.
En ég læt þetta nægja í bili hér í rigningunni í hollandi.. og ætla að koma mér að verki!
kærar kveðjur,
Erla
loksins fréttir frá Hollandi
Jæja, ætli maður láti ekki vita af sér núna þegar maður er kominn út... þessi afmælisfærsla hefur fengið að sitja kyrr allt of lengi.
Héðan er allt gott að frétta svosem. Ég hef komið mér vel fyrir í ca. 60 fm notalegri íbúð hér ca. 1 km. frá háskólanum sem ég hef út af fyrir mig. Þar hef ég stofu, svenherbergi, baðherbergi, eldhús, geymslu og 2 svalir... en því miður ekkert internet!!! Sem er hálf ónotlegt fyrir mig sem er gjörsamlega háð internetinu, en þó ágætt að því skapi að það er gott að venja sig af því ... ágætis tilraun að lifa á internetlausu svæði kvöld og helgar... sé til hvað ég get haldið pollýönnuleiknum í gangi lengur áður en ég fjárfesti í mobile interneti í gegnum þráðlausan ráder. Það er frekar dýrt en þó ekki yfirstíganlegt, ætla að finna besta tilboðið einhverja næstu daga og sjá til hvort af verður.
Nú skólinn gengur vel. Vinna að grein nr. 2 er komin af stað og hugmynd að grein nr. 3 komin á blað. Stefnan er að hespa þessum tveimur greinum af áður en ég fer heim héðan í lok maí. Hér er voða notalegt að vera og vinna, sérstaklega með fallega garðútsýnið hér frá skrifstofunni, þar sem 3 kanínuungar hlaupa hjá á fullu spani, á meðan spörfuglar og býflugur flögra um og páskaliljurnar spretta upp. Það er nú ekki farið að hlýna mikið hér, en fer þó upp í ca. 10 gráðum á daginn. Maður finnur aðalega munin á því hvað það er mikil stilla hérna..oftast um 3-4 m/sek. Voða notalegt bara. Utan skólans gerir maður lítið nenn sem komið er ema elda, kíkja á sjónvarpið og læra aðeins meira heima. Gunni ætlar líklega að kíkja hingað þarnæstu helgi og ætli ég fari ekki með honum svo til Berlínar þar sem ég ætla að eyða páskunum. Kannski við tökum bíltúr um suður þýskaland á leiðinni heim til Berlínar, hver veit... 
En ég bið að heilsa heim og vona að allir hafi það gott heima á klakanum.
ciao!
Erla
Hulda systir afmælisbarn dagsins!

Og þar sem Hulda systir á afmæli deginum á undan mér..., þá var afmælisdagurinn minn í gær... við erum svo samstíga í þessu systurnar... það eina sem við erum samstígar í... enda ólíkar eins og svart og hvítt :) En ég allaveganna bauð í smá samkvæmi hér á dudenstrasse í tilefni dagsins, og bakaði eitt stykki marenstertu, gerði súkkulaðiformköku, brauðrétti og heitt súkkulaði m/rjóma að hætti Íslendinga. Reyndar kom í ljós í miðjum vinnuhamnum að enginn dósaupptakari var til á heimilinu (rekum okkur á annað slagið að ofur einfalda en mjög mikilvæga hluti vantar hér á heimilið, og var því rokið út í búð í einum hvelli að redda því... eftir að hafa puðast við að opna eina sveppadós með skrúfjárni :) Við buðum svo Íslendingaskaranum hingað og einni þýskri stelpu sem hefur hjálpað Gunna heilmikið með þýðingu á þýskum ljóðum og þýska pappírsvinnu, sem er afar flókin á tímum. Reynar komust Egill og Soffía ekki og voru löglega afsökuð, enda eignuðust þau litla dömu á þeim góða degi 5. des). En hér var skálað í kampavíni og sötrað rauðvín í rólegheitum við kertjaljós, og borðað á sig gat. Við stefnum svo að því að bjóða hér í afganga í morgunsárið.
Ég skellti inn nokkrum myndum af seinustu dögum fyrir áhugasama, þó myndavélin hafi verið að stríða okkur undanfarið eftir dágott hrap úr tívolítæki í sumar!
Annars hefur verið lítið á dagskránni hérna. Við höfum kíkt á jólamarkaðinn á Gendermenmarkt og fengið okkur jólate niður í bæ, auk þess sem Gunni tók þátt í tónleikum í Finlandina Centrum í Kreuzberg þann 30 nóvember ásamt öðrum Nemendum Janets, söngkennara hans, og stóð sig svona glimrandi vel. Svo fór allur skarinn út að borða eftirá og að venju voru íslendingarnir þeir seinustu að fara heim..eftir allnokkra bjóra! Hér hef ég einnig verið að dunda mér við að föndra aðeins á kvöldin, og við tókum góðan innkaupatúr og keyptum tvo troðfulla risaikeapoka fulla af bökunarvörum, kampavíns og rauðvínsglösum, og eitt stykki bakaraofn fyrir eldshúsið. Kannski það verði hrært í jólasmákökur fyrir jólin, en annars styttist í að við förum heim, nánar tiltekið þann 19 des.
Með kveðju frá Berlín,
Erla og Gunnar Már.
til hamingju með daginn brósi!
Gísli er sá allra besti bróðir sem hægt er að hugsa sér, þolinmóður við litlu systur (lánaði henni nýja bílinn sinn hvað eftir annað), ljúfur sem lamb, alltaf til í að veita manni hjálparhönd, endalaust hægt að þræta við hann um alls konar hluti sem skipta ekki nokkru máli...., áhugasamur um svo margt og með stysta attentionspan sem ég hef nokkurn tíman kynnst, sérstaklega þegar tónlist á við hlut og áfengi er við hönd... þá er ekki óalgengt að hvert lag fái að hljóma í um 10-15 sekúndur!! ótrúlegur :)
En eitt af því merkilegasta við bróður minn, er að á þeim 5 árum sem við tvö deildum herbergi (frá því ég var átta ára og hann 12... ) og á þessu tímabili rifumst við nánast aldrei! Samkomulagið var svo gott að annað hvert kvöld var hlustað á Metallicu, AC/DC og Kizz, og næsta kvöld Kardemommubæinn, dýrin í hálsaskógi og Dolla dropa. Ekkert múður, ekkert ósætti...bara bestu vinir!
)

Ég á líka endalausar minningar um gamla tíma, að byggja risa spilaborgir á stofugólfinu og hanna endalausar ílabrautir úr kóktöppum frá Mattý og Tóta, Playmó inni í herbergi, rakettuskógur 1 janúar, bíló þar sem öllum bílum var raðað upp og hver fékk að velja einn bíl í einu (alltaf 100% lýðræði í gangi), fyrsta tölvuleikjatölvan... og svo margt margt fleira. Líf mitt og barnæska hefði verið fátæklegri ef þín hefði ekki notið við elsku Gísli.
Þú ert besti bróðir sem hægt er að hugsa sér. Takk fyrir allt og allt!

Þín litla systir,
Erla
yndislegur sunnudagur í Berlín að hausti
Hafði það gott, meira seinna og kannski ég skelli inn myndum við tækifæri.
Erla
komin tími á að ritarinn mæti á svæðið
Nú, meðfram hjólreiðnum hef ég tekið upp á því að rifja upp málarataktana mína, en ég keypti mér vatnliti og pensla um viku eftir að ég flutti hingað til Tilburg. Ég hef því átt nokkur ágætis kvöld hér heima við með lágværa tónlist á, kertaljós í glugganum, hvítvín eða gos í seilingarfjarlægð og pensilinn við hönd. Einnig hef ég notið þess til fullnustu að hæfa nægan tíma til að lesa! Lestur góðra bóka er eitt af mínum uppáhalds afþreyingum og ég get auðveldlega sökkt mér gjörsamlega á kaf í bókalestri dag eftir dag. Stundum svo að maður fer ekki að sofa fyrr en 4.30 næsta morgun og er ansi grár og gugginn daginn eftir í vinnunni. Að lokum, og að ég tel mestmegnið af frjálsa tímanum mínum, hef ég legið yfir Greys Anatomy á Youtube. Já, ég viðurkenni það, ég varð bara algjörlega hooked og náði að klára 4 season á 1 mánuði, geri aðrir betur. Við Gunni höfum stundum tekið svona maraþon að ganni okkar, eins og þegar við tókum heila seríu af 24 á 3 dögum yfir seinustu páska, og þá var horft frá ca 3 á daginn til 4 um nóttina! Ég gæti aldrei fylgst með spennandi seríu og séð aðeins einn þátt á viku með tilheyrandi bið eftir næsta þætti. Ég vil frekar fá þetta beint í æð og afgreiða málið strax. Svo miklu skemmtilegra! Í heildina má því segja að ég hafi haft það bara nokkuð gott hérna á þessum haustmánuðum í Tilburg, og náð að sinna mörgu því sem mér hefur ekki gefist tími til á undanförnum mánuðum. Ég er mjög ánægð með að vera komin í penslana aftur, og hef jafnvel tekið að mér að fara í nokkra net söngtíma með Gunna inn á milli...læt ykkur vita hvernig þau mál þróast!
Ég hlakka þó til að fara aftur til Berlínar nú í byrjun nóvember og eiga góðar 7 vikur þar áður en ég kem heim fyrir jólin, þó haustið hérna hefur verið reglulega notalegt. Hér liggja laufblöð yfir öllu eins og litskrúðug snjóbreiða, gul, rauð, græn og brún að lit. Á góðum dögum hefur hitinn náð upp í 20 stig og einhvernveginn kann maður ekki alveg á svona hita á haustmánuðum. Alltaf enda ég á því að klæða mig aðeins og mikið, treysti því einfaldlega ekki að það sé í raun svona gott veður í októbermánuði! Það mun þó verða kalt hér sem og í Berlín í nóv og des, enda kuldinn annars eðlis hér á meginlandinu. Meiri raki í loftinu og kuldinn smígur einhvernveginn inn að beini. Þó langaði mig mikið að geta hoppað heim í morgun þegar ég heyrði af jólasnjókomunni sem var mætt á svæðið. Veit fátt betra en að sitja við gluggann og horfa á stóru flygsunar svífa hægt til jarðar, fara í göngu og heyra brakið í snjónum undir fótum mér, og fara svo inn með kalda puttana og hita mér kakó! Í mínum huga er Ísland best í heimi þegar það er í þeim búningi.... sem og auðvitað á Jónsmessunótt á björtum nóttum, liggjandi innan um birkitré hlustandi á fagran söng Lóunnar og spóans. Þetta tvennt verður ekki toppað.