Vá það eru engin smá skrif :-), gaman að heyra að allt er gott hjá ykkur /þér á þessum síðustu og verstu tímum, en ég skil þetta með bókalesturinn hehehe held reyndar að ég taki meira svona lestrar maraþon en sjónvarps hummm, það er nú einhvern veginn þannig að bókinn verður alltaf ofan á.
Jæja bið að heilsa og hafðu það gott í Berlín hjá þínum ektamanni.
Lauga
komin tími á að ritarinn mæti á svæðið
22. október 2008 klukkan 18:24
Já, ég hef aldeilis verið löt við að skrifa pistla hérna upp á síðkastið. Er það ekki einhvernveginn þannig að þeim mun meiri tíma sem maður hefur milli handanna, þeim mun minna gerir maður við hann? Ekki það að ég hafi haft lítið að gera, sitandi upp í skóla á skrifstofunni minni frá 9 til 18.30 flesta daga, en það er þó sá munur á að kvöldin og helgar hef ég algjörlega út af fyrir mig, bóndinn í Berlín og fjölskyldan heima á Íslandi. Þessi einvera hentar mér ágætlega verð ég nú bara að segja, hef alltaf verið sjálfri mér nóg og mikil dundari, jafnvel einræn á köflum held ég bara. En já, ég hef nú eiginlega bara notið þess að hafa svona ágætis slatta af tíma á mínum höndum og geta skipulagt algjörlega eftir eigin höfði hvað ég bralla hverju sinni. Ég hef nú ekki ferðast mikið um hér í Hollandi frá því ég kom hingað í lok Júlí, en hef þó flakkað töluvert mikið um Rotterdam borg, kíkt einn góðan dag til Amsterdam og farið góða 3 daga til Delft. Svo splæsti ég í eitt stykki hjól í lok september og hef notað það óspart til að hjóla hér um borgina um helgar. Það er hreint ótrúlega góð aðstaða fyrir hjólreiðamenn hér, allstaðar hjólastígar, sér ljós fyrir hjólreiðamenn á langflestum gatnamótum, hvort sem þau eru stór eða smá, og gert ráð fyrir hjólreiðamönnum á götunum, þ.a. maður fylgir frekar bílaumferðinni og kemst hraðar yfir en er ekki fastur í hægagangi meðal gangandi á gangstéttinni. Mér finnst þó samt alltaf skondið þegar ég sé menn á vespum og (öllu verra) mótorhjólum á þessum hjólastígum. Þó þeir eigi að mér skylst fullann rétt á því að ferðast þar um, og komast oft á tíðum hraðar yfir, þá bara einhvern veginn passar ekki að sjá mann á flottu massívu mótorhjóli keyrandi um á hjólastíg! Neibs, það er bara of skrítið fyrir mig.
Nú, meðfram hjólreiðnum hef ég tekið upp á því að rifja upp málarataktana mína, en ég keypti mér vatnliti og pensla um viku eftir að ég flutti hingað til Tilburg. Ég hef því átt nokkur ágætis kvöld hér heima við með lágværa tónlist á, kertaljós í glugganum, hvítvín eða gos í seilingarfjarlægð og pensilinn við hönd. Einnig hef ég notið þess til fullnustu að hæfa nægan tíma til að lesa! Lestur góðra bóka er eitt af mínum uppáhalds afþreyingum og ég get auðveldlega sökkt mér gjörsamlega á kaf í bókalestri dag eftir dag. Stundum svo að maður fer ekki að sofa fyrr en 4.30 næsta morgun og er ansi grár og gugginn daginn eftir í vinnunni. Að lokum, og að ég tel mestmegnið af frjálsa tímanum mínum, hef ég legið yfir Greys Anatomy á Youtube. Já, ég viðurkenni það, ég varð bara algjörlega hooked og náði að klára 4 season á 1 mánuði, geri aðrir betur. Við Gunni höfum stundum tekið svona maraþon að ganni okkar, eins og þegar við tókum heila seríu af 24 á 3 dögum yfir seinustu páska, og þá var horft frá ca 3 á daginn til 4 um nóttina! Ég gæti aldrei fylgst með spennandi seríu og séð aðeins einn þátt á viku með tilheyrandi bið eftir næsta þætti. Ég vil frekar fá þetta beint í æð og afgreiða málið strax. Svo miklu skemmtilegra! Í heildina má því segja að ég hafi haft það bara nokkuð gott hérna á þessum haustmánuðum í Tilburg, og náð að sinna mörgu því sem mér hefur ekki gefist tími til á undanförnum mánuðum. Ég er mjög ánægð með að vera komin í penslana aftur, og hef jafnvel tekið að mér að fara í nokkra net söngtíma með Gunna inn á milli...læt ykkur vita hvernig þau mál þróast!
Ég hlakka þó til að fara aftur til Berlínar nú í byrjun nóvember og eiga góðar 7 vikur þar áður en ég kem heim fyrir jólin, þó haustið hérna hefur verið reglulega notalegt. Hér liggja laufblöð yfir öllu eins og litskrúðug snjóbreiða, gul, rauð, græn og brún að lit. Á góðum dögum hefur hitinn náð upp í 20 stig og einhvernveginn kann maður ekki alveg á svona hita á haustmánuðum. Alltaf enda ég á því að klæða mig aðeins og mikið, treysti því einfaldlega ekki að það sé í raun svona gott veður í októbermánuði! Það mun þó verða kalt hér sem og í Berlín í nóv og des, enda kuldinn annars eðlis hér á meginlandinu. Meiri raki í loftinu og kuldinn smígur einhvernveginn inn að beini. Þó langaði mig mikið að geta hoppað heim í morgun þegar ég heyrði af jólasnjókomunni sem var mætt á svæðið. Veit fátt betra en að sitja við gluggann og horfa á stóru flygsunar svífa hægt til jarðar, fara í göngu og heyra brakið í snjónum undir fótum mér, og fara svo inn með kalda puttana og hita mér kakó! Í mínum huga er Ísland best í heimi þegar það er í þeim búningi.... sem og auðvitað á Jónsmessunótt á björtum nóttum, liggjandi innan um birkitré hlustandi á fagran söng Lóunnar og spóans. Þetta tvennt verður ekki toppað.

Leitt að heyra að þú kemur ekki í nóv. eins og planið var fyrst en ég skil þig þó vel að fresta því. Hlakka til að sjá þig þegar þú kemur heim í des. og vonast til að geta hitt þig eitthvað yfir jólatímann eða allaveganna fyrir 16.janúar. verðum í bandi.