yndislegur sunnudagur í Berlín ađ hausti
02. nóvember 2008 klukkan 21:32
jæja, nú er maður mættur til Berlínar eftir góða 10 tíma lestarferð í gær. Ferðin gekk að óskum, og náði ég að klára bókina mína sem ég er að lesa, enda ekki oft sem maður hefur 10 tíma aflögu til lesturs. Dagurinn í dag var svo tekin með stæl. Að sjálfsögðu sváfum við út og rétt rumskuðum um hádegisbil. Við kíktum á einn sjónvarpsþátt upp í rúmi og röltum svo á Rubens kaffihúsið og fengum okkur brunch með Einari. Þar röðuðum við í okkur einni kræsingunni á eftir annarri, gæddum okkur á iced caramel macchiatto (nammmm) og tókum svo lestina niður í bæ til að enda herlegheitin á uppáhalds ísstaðnum okkar niður á Potsdamerplatz. Já maður er sannarlega búin að borða á sig gat í dag. Við tókum svo göngu niður á Friederich strasse, fórum í eina af glæsilegri súkkulaðibúðum borgarinnar og röltum Gendermenmarkt torgið. Um fimm leitið var stefnan tekin heim til að horfa á vídeó, og hlýja sér aðeins, enda var svolítið svalt hér í borg í dag. Að lokum enduðum við daginn á pizzu á litlum ítölskum veitingastað hér rétt hjá, Amici Mei. Í heildina, alveg brill dagur en það verður nú ekki svona sukk og svínerí í gangi næstu vikurnar, þetta var meira svona Erla komin til Berlínar fagnaður :)
Hafði það gott, meira seinna og kannski ég skelli inn myndum við tækifæri.
Erla
Hafði það gott, meira seinna og kannski ég skelli inn myndum við tækifæri.
Erla