Klukkan

Auglýsing

Myndasíða okkar skötuhjúanna

Stóri dagurinn...!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

ótrúlegt en satt

13. ágúst 2009 klukkan 21:06
... þá ætla ég loksins búin að logga mig hér inn og ætlaði að pára inn fullt af texta... og var komin með fullt fullt af dóti en það datt síðan allt út!! Arg!

En hér kemur stutt version af fyrri textanum:

Foreldrar Gunna eru nýfarin heim eftir góða vikudvöl hér í Berlín. Þau náðu að sjá ágætis slatta af borginni þó hnéð á Má hafi truflað hann nokkuð, við notuðum strætóana óspart í staðinn. Við náðum að kíkja með þau á klassískku staðina; Kurfurstendamm þar sem kíkt var í búðir, niður á Gendermenmarkt að skoða þýsku og frönsku kirkjuna, Alexanderplatz, Friedrichstrasse, Potsdamer platz, auk þess sem við fórum með þau um hér í kring um hverfið okkar og fórum einn dag í Botanishcer Garten, sem er risastór 126 fm listi-og plöntugarður.. sem hefur að geyma um 22. þús plöntutegundir og eitt stærsta gróðurhús í heimi. Þarna eru plöntur alls staðar að úr heiminum og afar áhugavert að skoða. Nú, Ásthildur og Cristophe náðu að kíkja aðeins til okkar yfir helgina og var það mjög gaman. Það var spjallað mikið og tekinn heljarinnar Berlínartúr á laugardeginum, en sunnudagurinn var nýttur í brunch með allan hópinn og svo bara að slaka á í góða veðrinu. Alltaf gaman að fá gesti til Berlín :o)


Fyrri part sumarsins nýttum við Gunni svo hér í Berlín til tölvuvinnu og söng, en höfum verið dugleg inn á milli að fara í hjólatúra, kíkja í garðinn með bók og hitta Einar, Egill, Soffíu og Davíð hér og þar um borgina, bæði í matarboðum heima við sem og að kíkja í nýja garða, út að borða Sushi eða bara spássera um. Við reyndar fórum ágætis vikuferð um allt þýskaland í lok júlí með Agli og Soffíu, og bróður Egils og kærstu hans, þar sem kíkt var til Dresden, Bayruth (tónleikahús Wagners skoðað), Wurzburgar (kíktum á vínekrurnar í ochenfurth og fórum í bátsferð auk þess að kíkja á sjálfa borgina). Eftir 4 daga ferð skildu leiðir og við Gunni héldum af stað í tívolí í Europapark þar sem við bættum við tveimur nýjum myndum í rússíbanamyndasafnið okkar og einni dvd mynd af okkur í íslenska BlueFire rússíbananum. Við vorum hinsvegar hundspæld að það væri ekki íslenskt nammi að fá í íslenska þorpinu!!  Eftir góða 2 daga á þeytingi, keyrðum við sem leið lág um svartaskóg til Bodensee, þar sem við kíktum á einum degi til Lindau í þýskalandi (fyrri part dags), bregenz í austurríki (seinni part dags) og Rorschach í Sviss í kvöldmat (ekki svo góð hugmynd því við vorum búin að steingleyma að þeir væru enn með svissneska franka en ekki evrur...). Við fórum líka upp að ölpunum og í fjallakljáf í Obensdorf upp í 2.300 metra hæð, sem var alveg frábært. Þar uppi á toppi var að finna lítinn veitingastað sem hægt var að tjilla á, auk þess sem það voru gönguleiðir um allt fjallið. Við kláruðum svo ferðinna á því að kíkja í sólbað við vatn eitt milli fjallanna og njóta veðurblíðunnar. Ágætis ferðapakki sem við náðum á einni viku, enda voru keyrðir 2.400 km í þessu stutta ferðalagi.

En hversdagsleikinn tekur nú við eftir gestaganginn og ferðalög sumarsins, en þó eru eftir Pearl Jam tónleikar sem fara fram nú á laugardaginn hér í Berlín, og undirritaðri er farið að hlakka mikið til.

Ég mun henda inn myndum af sumrinu við tækifæri, er ánægð með í bili að hafa náð að skrifa inn eitt stykki pistill!! :o) (það er líka hægt að sjá myndir inn á facebookinu fyrir þa sem ekki nenna að bíða).

kveðjur frá Berlín,
Erla
húrra húrra ...bloggg :) Alveg himinlifandi með þetta framtak þitt mín kæra ....mín bloggsíða liggur þó enn í leti og hef eg ekki enn ákveðið hver örlög hennar verða ...ég læt facebook duga að sinni ....en jáá, bara flott hjá þér mín kæra og gaman að lesa þetta þótt svo að ég var búin að fá "live-version" með þetta ferðalag þitt ..en það eru ekki allir svo heppnir ...hehehe, svo þetta er flott. Hafðu það gott og vonast til að heyra í þér áður en þið flytjið til Holllands.
#1
17. ágúst 2009 klukkan 10:31
 
Sidda
Gaman að lesa bloggið hjá þér, haltu áfram að vera dugleg að skrifa. koss og knús frá okkur til ykkar:)
#2
24. ágúst 2009 klukkan 11:18

Skrifa athugasemd