Klukkan

Auglýsing

Myndasíđa okkar skötuhjúanna

Stóri dagurinn...!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

haustiđ mćtt til Tilburgar

03. nóvember 2009 klukkan 23:40
Núna þegar maður er loksins komin með netið, eftir góða mánaðarbið, er komin tími til að setja einhverjar fréttir af okkur héðan frá Hollandi.

Hér á bæ hefur haustið verið rólegt og fínt, og við svosem ekki verið mikið á ferðinni. Gunni hefur verið hér hjá mér í Tilburg frá byrjun október, og það hefur farið vel um okkur hér í litlu 50fm íbúðinni minni. Veðrið hefur verið alveg frábært hingað til, nánast alltaf stilla og hitinn var svona í kringum 20° í september og 13-17° í október. Ekki hafa heldur skemmt fyrir fjölskrúðugu haustlitirnir á öllum trjánum hér í kring, sem er nú nokkur slatti af. Það er mjög flottur og stór garður beint fyrir aftan háskólann sem ég kíkji í stundum í hádegishlénu til að hressa upp á sál og líkama eftir stífa tölvuvinnu daginn út og inn, og hefur verið afar flott að fylgjast með litabreytingunum þar. Sömuleiðis höfum við Gunni rölt talsvert niður í miðbæ sem er ágætis 30 mínútna ganga, til að kíkja í búðir, fá okkur snæðing og hollenskt eðalöl inn á milli.

Við fórum þarseinustu helgi góða dagsferð til Delft, Den Haag og Schrevinengen, með litlum hópi fólks úr háskólanum og skoðuðum okkur um. Það er alltaf jafn gaman að koma til Delft, enda afar sjarmerandi borg. Við höfðum ekki farið áður til Den Haag og Schrevinengen, og mín var ánægð með að anda að sér ferska sjávarloftinu... :o) á kaffihúsi við sjávarsíðuna fékk ég eina þá bestu eplaböku sem ég hef á ævinni fengið, og ekki skemmdi fyrir að sitja við arineld eftir langan göngutúr í svölu sjávarloftinu. Nú, seinasta föstudag kíktum við svo til Utrecht á tónleika hjá Conservatorium tónlistarskólanum, þar sem Gunni hitti einn íslenskan söngkennara sem hann ætlar kannski að kíkja á. Á tónleikunum hófu fjórir íslenskir söngnemendur upp raust sína, ásamt hollenskum kollegum sínum og fjölda tónlistarnema (fiðlur, celló, píanó, þverflautur, víólur etc.). Það var mjög gaman að kíkja þarna og Utrecht virkaði mjög vel á mig, við eigum eflaust eftir að kíkja þangað aftur við tækifæri. Það er verst hvað það er dýrt í lestarnar hér, við erum að borga alveg 25 evrur á mann fyrir ferð fram og til baka til Haag, sem svíður aðeins í budduna, sérstaklega þegar krónan er komin lengst niður á hafsbotn...,

En já, lífið gengur sinn vanagang hér, það er ósköð notalegt að hjóla í vinnunna á hverjum degi, kíkja við í búðinni á leiðinni heim og elda svo fyrir eiginmanninn sem er duglegur við sínar söngæfingar hér daginn út og inn. Ég tók mig til og fór með marenstertu upp í vinnu um daginn, þeir eru ekki mjög vanir marenstertum hér hollendingarnir og þótti tertan góð. Svo fór ég reyndar líka á matreiðslunámskeið um daginn með allri deildinni úr háskólanum þar sem ég lærði nýja uppskrift af súkkulaðiköku með vanillukremi sem var hreint ljómandi góð. þ.a., þeir sem kíkja hingað í kaffi meiga eiga von á einni góðri...

jæja, ég læt þetta nægja í bili, þarf að koma mér í háttinn, vinnan bíður á fyrramálið!!

kveðjur,

Erlíus,

ps. nýjar myndir á myndasíðunni

 
Sidda
Gaman gaman nýtt blogg:) Gott að heyra að allt gangi vel. Nú fer að styttast í afmælið þitt og heimsókn til ísland, Jibbý;)
Knús frá okkur óla
#1
15. nóvember 2009 klukkan 22:44

Skrifa athugasemd