Klukkan

Auglýsing

Myndasíða okkar skötuhjúanna

Stóri dagurinn...!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

23 jan

23. janúar 2008 klukkan 16:36
heil og sæl.

Lítið að frétta af mér þessa dagana. Er búin að gefa mér tíma til að melta góðu fréttirnar sem ég fékk fyrir helgi og ná mér niður á jörðina. þessa dagana er verið að leggja plönin fyrir næstu mánuði, en enn sem komið er er ekkert niðurnjörfað nema ferð til Berlínar 18 feb til 3 mars. Væntanlega fer ég líka til Rotterdam í byrjun mars, og svo aftur til Berlín í Apríl..... vonandi góðar 4-5 vikur í það skiptið. Gunni er komin út og búin að koma sér vel fyrir. Vonandi mun hann fjárfesta í rúmi á næstunni (þó dýnurnar á gólfinu standi alveg fyrir sínu þá er svolítið kalt að sofa á gólfinu þegar lítið er kynt) og svo er nýja borðstofuborðið á leiðinni. Þið munuð þó ekki fá að sjá neinar myndir á næstunni þar sem myndavélin okkar ákvað að fara til Parísar en hleðslutækið er í Berlín og aðal ljósmyndarinn á Íslandi!  Ce la vie!

en já, þar til næst,
Erlíus

19 Jan 2008

19. janúar 2008 klukkan 12:20
Sælt verið fólkið og gleðilegt ár.

Eitthvað hefur liðið langt frá seinustu færslu, enda erum við skötuhjúin búin að hafa það óskaplega gott yfir jólin og nýárið, mikið borðað, drukkið og slappað af. Þó reyndum við að vinna eins og við gátum yfir jólin og nú í janúar, því það kostar pínu skilding að koma sér upp íbúð í Berlín, eins og við fengum að reyna í haust. Við erum samt hæstánægð með íbúðina og hvernig til tókst!
Gunni fór aftur til Berlínar í gær með troðfullar töskur af húsbúnaði og tók einnig rafmagnspíanóið með sér... þ.a. nú fyrst er íbúðin orðin íbúðarhæf að okkar mati :) Það kom skemmtilega á óvart hve ódýrt var að taka píanóið með, ekki nema 15 þús kall í fragt.  þeir eru samt orðnir strangir á töskuþyngdinni (max 20 kíló  á farangur) og þurftum við því að týna upp úr töskunum og troða í handfarangurinn hans svo hann kæmist með allt. Fyndið að þeir skuli láta mann standa í þessu því allur farangurinn hans fór nú samt sem áður með í vélina! Bara í handfarangi í staðin fyrir innrituðu töskunum. kemur út á eitt.

En já , gærdagurinn var mjög viðburðaríkur og eftirminnilegur. eins og venjulega var byrjað á líkamsræktinni... mín er að æfa 5 sinnum í viku núna til að koma sér í almennilegt form til frambúðar.....(eða það er stefnan allaveganna) og hljóp svo heim til að ná í kveðjuhádegismat með tengafjölskyldunni áður en ég þyrfti að keyra Gunna út á flugvöll. Það var búið að lofa mér góðu veðri á leiðinni en auðvitað fór að snjóa þegar við lögðum af stað.... og við aðeins of sein eins og oft vill gerast. Við náum út á flugvöll og reddum yfirvigtinni og ég kveð minn ektamann. Er heillleingi á leiðinni til baka á reykjanesbrautinni því nú er byrjað að snjóa ennþá meira !!! og mín er ekki sérlega hrifin af því að keyra í snjó. Ég rétt næ í vinnuna á réttum tíma kl. 15... og hef nóg að gera ... enda alltaf fjör þar og nóg fyrir stafni... þangað til ég fæ símtal um sjö leitið.  Þá hafði samstarfsmaður minn í rannsókninni reynt að ná í mig í allan dag... frá því klukkan tíu um morgunin... til að láta mig vita að við hefðum fengið styrk frá Rannís!!! Ég átti ekki til orð, enda búin að bíða eftir fréttum af styrknum síðan 1 október og þorði ekki að gera mér vonir... en já, við fengum styrk og því var boðið til fagnaðar kl. 20. sem ég náttúrulega varð að komast í. Mér tókst með hjálp elskulegs samstarfsmanns míns að redda mér fríi í einum hvelli og brunaði í fagnaðinn, þar sem drukkið var hvítvín, skálað, hlegið, gætt sér á ostum og rædd næstu framtíðarskref. Ég er semsagt officially komin á laun við rannsóknarnámið mitt :) Ég bjóst ekki við fréttum af styrknum fyrr en 31 jan eins og í fyrra (þegar við fengum hann ekki), og var því engan vegin undirbúin fyrir þessar fréttir. Við fengum þriggja ára styrk, en þurfum að skila lokaskýrslu yfir árangur hvers árs til að fá úthlutaða peninga fyrir næsta ár.

það var því bæði gleði og sorgardagur í gær, fyrst að kveðja Gunna og svo  að fá þessar fréttir..., Gunni fór bara einum degi of snemma því miður, og missti því af fagnaðinum! En við höldum bara upp á þetta í Berlín þegar ég fer þangað að heimsækja hann í febrúar.

þar til næst,
Erlíus

23. desember 2007 klukkan 19:44
Við erum kominn á klakann. Það var ágætis 4 tíma seinkunn á fluginu en þetta reddaðist allt. Við vorum komin í ból klukkan 5 um morgunin og á fætur kl.10... enda vildum við ekki missa af kókapuffs afmælismorgunmatnum  til heiðurs Ásthildar, sem varð þrítug þann 22 des! Svo var kíkt í jólagrautinn til mömmu í dag á þorláksmessu, með tilheyrandi möndlugjöfum og góðgæti. Voða gaman að hitta fjölskylduna svona fyrir jól og eiga góða stund saman, þó það hafi nú vantað Huldu og co sem er fyrir austan. Já, svona er að búa á sitthvorum staðnum. Það verður bara enn meira gaman þegar við hittum þau eftir jól... plönum eitthvað skemmtilegt þá.

Á morgun tökum við daginn rólega, kíkjum í kirkjugarðinn og röðum pökkunum undir jólatréð. Mest hlakka ég til að vera í faðmi fjölskyldunnar og eiga góð stund með þeim, borða góðan mat og slappa af í jólahátíðleikanum.

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla, og vona að þið hafið það sem best yfir hátíðarnar.

Jólakveðjur,
Erla

myndir

13. desember 2007 klukkan 14:58

Jæja, við erum loksins komin með internetið hér heima. Það tók smá tíma að tengja þetta allt og fá símann til að virka í gær, en þetta tókst allt saman. Og fyrst við erum komin með netið, þá er ég búin að smella inn myndunum sem ég var búin að lofa..., þær eru komnar á myndasíðunna (sjá link hér til hliðar).

Endilega kíkið á þær!

Annars er lítið að frétta héðan..., það styttist í að við komum heim, nánar tiltekið þann 21 des.. seint um kvöldið. Svo er Ásthildur kellingin þrítug daginn eftir og svo er barasta komin þorláksmessa og svo jól!
Ég er ekki að trúa því að jólin séu að koma. Mér finnst þau alltaf læðast aftan að mér og svo eru þau allt í einu komin og farin, áður en maður veit af.

En j á, nenni ekki meiru í bili, við erum að fara að rölta niður á Potsdamer platz og ætlum í bíó á surprise sýningu (ódýrara í bíó og þeir sýna myndir sem eru væntanlega í bíó en eru ekki komnar í almenna sýningu). Hvenær lætur maður sig hafa það heima að labba 40 mínútna leið til að fara í bíó og 40 mínútur heim???? Held ég hafi barasta aldrei prófað það heima :)

Berlínarkveðjur,
Erla og Gunni
 

hundalíf i berlín

11. desember 2007 klukkan 15:06
jaeja.... thad er svona thegar madur er ekki kominn med internetid og alltaf í tímathröng á internetkaffinu..., thá gefst ekki mikill tími i ad blogga.

En já, thad er allt gott ad frétta hédan. Afmaelisdagurinn var afskaplega rólegur og eitt í thad ad bída eftir símavidgerdarmanninum, sem maetti svo aldrei.. :( Vid kíktum thó um kvöldid á alveg aedislegan mexikanskan stad og fengum okkur borrito og fajhitas :) namm namm. Thessi stadur á potsdamer platz er med alveg frábaeran mat og skemmtilega stemningu og ekki svo dýr. Svo var barasta tekid vídeó og slappad af heima. Vid fengum svo loksins símavidgerdarmanninn daginn eftir sem nádi ad tengja símalínuna en ekki internetid... vid fáum thad vaentanlega í vikunni. Thad tekur allt nefnilega svolítid langan tíma hér úti. Nú, annars er lítid ad frétta af okkur. Vid erum mest heima ad laera og aefa okkur thessa dagana, en aetlum ad kaupa lestarkort í lok thessarar viku og taka smá törn ad skoda borgina meira.

Eitt sem ég hef tekid mikid eftir hér í berlín er hvad thad er mikid af hundum hérna, af öllum staerdum og gerdum. Their fara med eigendum sínum út um allan bae, í lestirnar, matvörubúdir, ikea.., já út um allt og eru upp til hópa alveg ótrúlega vel agadir. Their varla líta vid manni.., og á einni vídeóleigunni sem vid skiptum reglulega vid er hundur med rúmid sitt út í glugga og er thar, eda röltir um búdina og situr i dyragaettinni medan eigandinn er ad vinna. Algjör snúlli og svo saetur golden retriever. Thetta hef ég ad minnsta kosti ekki ordid var vid heima.


Jaeja, kved í bili, aetla ad halda áfram ad laera.

Kvedjur frá stillunni og blídvidrinu  i Berlín,
Erlíus 

afmaeli, afmaeli afmaeli

05. desember 2007 klukkan 14:55
jaeja...., flottasti dagur ársins runninn upp, afmaelisdagurinn minn 5 des.

Thetta verdur  nú stutt núna... thví ég tharf ad fara ad taka á móti símavidgerdarmanninnum sem aetlar ad reyna ad tengja símann og internetid fyrir okkur núna á eftir.  Gunni er búin ad bjóda mér upp á heitt súkkuladi og kökur í dag... thannig ad thad vaesir nú ekki um mig hérna úti á afmaelisdaginn..., og svo verdur stefnan tekin á annadhvort bíó í kvöld eda ad kíkja á jólamarkad nidur í bae..., einn af fjölmörgum hér í Berlín. Thar verdur ef til vill kíkt í parísarhjól, keyptar heitar belgískar vöfflur med súkkuladi og jólate, skodadad jólavörur, heimagerdar gjafavörur og alls kyns dót... eitthvad verdur allaveganna gert í tilefni dagsins. 

Takk fyrir afmaeliskvedjurnar....flott afmaeliskvedjan á blogginu thínu Ruth mín :)    og ég sendi risa knús á alla heima :)  


afmaelíus dagsins
Erla

30 Nóv

30. nóvember 2007 klukkan 20:39

halló halló

eftir mikinn pirring og vesen í gaer thá er ég komin á internet kaffid aftur :(  Vid áttum ad fá internetid og símann í gaer en thad var sama hvernig vid tengdum apparatid saman...., móthaldid og símtaekid... ekkert virkadi. Vid thurfum thví ad fara í símabúdina thar sem vid gerdum símasamninginn og fá adstod. Mikid svakalega var gaman ad lesa allar samsetningarleidbeiningarnar á thýsku :)

En já, lífid gengur sinn vanagang hér í Berlín. Vid erum búin ad fá ledursófann vid sjónvarpid thannig ad nú loksins er haegt ad sitja og horfa á flotta sjónvarpid hans Gunna... :) thessa vikuna höfum vid mest verid heima og laera/aefa/vinna og skroppid í göngutúra hér í kring. Vid uppgötvudum mjög góda búd hérna rétt vid baejardyrnar hjá okkur um daginn sem býdur upp á mjög gott vöruúrval og er nokkud ódýr. Svo tókum vid gódan göngutúr nidur í midbae á fimmtudaginn og thad kom okkur á óvart hve fljót vid vorum ad rölta thetta, um 30-40 mínútur. Svo var samsöngur hjá Gunnari í dag sem ég maetti á, og var ótrúlega gaman ad sjá hvad thessir krakkar eru ad gera, margir ordinir professional söngvarar og frammistadan eftir thví. Thau munu halda annan sönghitting rétt fyrir jól og mig hlakkar til ad fara á adra svona ,,stofu tónleika". 

Annars er stór dagur á morgun, thví thá er baedi 1 árs trúlofunarafmaeli okkar Gunna og jardaför hennar ömmu Röggu. Thad verda thví blendnar og ljúfsárar tilfinningar í gangi á morgun. 

Vid bidjum ad heilsa öllum heima og verid gód vid hvort annad

Erla og Gunni

22 nóv

22. nóvember 2007 klukkan 20:07
Thad er frekar dauft í okkur hljódid thessa dagana thví elskuleg amma hans Gunnars, Ragnheidur Ásmundardóttir lést í gaermorgun. Vid vorum svo heppin ad hafa átt mjög gódan tíma hjá henni nú í lok október thegar vid heimsóttum hana upp í Borgarnes og spjölludum heilmikid. Thad var ótrúlegt hvad hún var hress og ern, ordin 87 ára og gat sagt manni endalausar sögur um fyrri prakkarastrik sín og ýmsa atburdi sem hún hafdi lent í, og alltaf mundi hún fullt nafn allra sögupersóna og gat rekid aettir theirra langt aftur í tímann. Mikill er missir okkar. Vid eigum eftir ad sakna hennar mikid og sendum hugheilar kvedjur til allra heima.

Erla og Gunni

annar langur dagur ad kvöldi kominn

19. nóvember 2007 klukkan 21:22
Saelt veri fólkid. Loksins komin á internet kaffid eftir 10 tíma ráp um berlín..., thessir dagar verda ansi langir thegar madur er á theytingi allan daginn. Ég fór med Gunna í söngtíma í morgun og var gaman ad hitta loksins Janet, söngkennarann hans Gunna. Svo var brunad í búdarleidangur ad kaupa sjónvarp og thvottavél sem vid fundum á nokkud gódu verdi í stórri raftaekjaverslun hér í borg. Vid fáum svo herlegheitin send heim á morgun og allt verdur sett upp... :) Ad thessu loknu var brunad nidur á kunfurstendamm verslunargötuna til skoda matarstell.... og Gunna minnti ad Rosenthal  búdin hefdi verid rétt hjá lestarstödinni.... sem thýddi 3 km. labb nidur kunfurstendamm adeins til ad komast ad thvi ad búdinni hefdi verid lokad.... og thá var ad labba aftur upp 3 km.... til ad komast í adra rosenthal búd sem var efst í götunni! Ágaetis líkamsraekt thad... og ég sem var ekki í aesic íthróttaskónum mínum í dag.... bara taer snilld eda thannig. Thetta hafdist thó og vid sáum tvö stell sem okkur leist vel á, eina vandamálid er ad Gunna finnst annad flott og mér hitt :( vid finnum nú samt út úr thví.

Annars er allt gott ad frétta af okkur hjónakornunum hérna úti. Vid erum ad bída eftir ad fá símanúmer og internet..., thad aetti ad koma í lok vikunnar eda byrjun naestu viku, og thá getum vid sett inn myndir á myndasíduna, thid verdid thví midur ad bída róleg á medan....

Kaerar kvedjur frá Berlin
Erla og Gunni

16 nóv

17. nóvember 2007 klukkan 12:17

vildi bara láta ykkur vita ad allt gengur vel hér úti. Erum byrjud ad setja skemmtilegu ikea vörurnar saman og erum ad leita okkur ad sjónvarpi og thvottavél eins og stendur. Annars lítid ad frétta.... erum á leidinni nidur í bae ad skoda teppi, rúmgafla og fleira...., thetta kemur haegt og rólega.... og íbudin er alltaf ad taka á sig meiri svip. Svo vill Gunni baeta vid ad vid fengum okkur risa ís í gaer.... sem var ótrúlega gómaetur..., allir sem koma í heimsókn geta komid og smakkad med okkur .... samt hrikalega stórir skammtar..... :)  já, og svo hittum vid líka á gódan mexicanskan stad í gaer og kiktum í bíó...., og madur á nú ekki ad hvarta yfir bíóauglýsingunum heima, thaer eru helmingi verri hérna og svo stoppa their bíóid í byrjun (ádur en myndin byrjar) til ad selja ís í salnum!! :O what´s that about!

allaveganna, gódur og skemmtilegur dagur í gaer.... annad en í fyrradag thegar vid bidum í trjá tíma úti á götu eftir ad fá ikea vörurnar sendar heim.. that var frekar fúlt... og leidingjarnt. En thaer skiludu sér.
  

Laet thetta naegja í bili....erum ad flýta okkur í verslunarleidangur

ciao

Erla og Gunni